|
Umhyggjusöm hönnun
mildar aðstæðurnar.
Akstursupplifun í CR-V er sú sama og í fólksbíl því bíllinn var hannaður til að vera eins og fólksbíll í akstri. Frá lengdu hjólhafinu að straumlínulöguðum undirvagninum, hefur hvert smáatriði verið rannsakað og svo endurrannsakað til að tryggja nákvæma og mjúka svörun. Svo CR-V geti auðveldlega tekist á við vegi af öllum stærðum og gerðum og haldið fullri reisn á meðan.
Öryggi og hugarró. Þú upplifir ýmislegt í bíl, en titringur ætti ekki að vera eitt af því. Til að takast á við ófyrirsjáanlegt ástand veganna og hugsanlegt veghljóð er CR-V búinn til úr léttu og einstaklega sterku stáli og er auk þess búinn hljóðeinangrun í allri byggingu bílsins. Þessi atriði gera hann einstaklega þægilegan og hljóðlátan í akstri.
Fjöðrun. Með MacPherson sjálfstæða klafafjöðrun að framan og sjálfstæða fjölarma fjöðrun að aftan (Double wishbone) nær CR-V fullkomnu jafnvægi. Aukin þægindi án þess að fórna plássi í farangurs- eða farþegarými.
Lág þyngdarmiðja. Eiginleikar fólksbíls stafa að mestu af lágri þyngdarmiðju CR-V. Við þetta bættum við svo 17“ felgum og endurhönnuðum grindina. Til viðbótar við þægindin, upplifir ökumaðurinn nú enn meiri lipurð og nákvæmni við stýrið.
|