|
Honda Civic Sedan er algerlega endurhannaður frá grunni. Civic Sedan mun ekki aðeins fá fólk til að snúa sér við þegar hann ekur hjá, heldur mun hann líka bræða hjörtu þeirra sem honum aka. Nútímaleg hönnun Honda Civic brýtur upp fyrri hugmyndir um hönnun bíla og gerir aðrar tegundir gamaldags í öllum samanburði.
Veldu því Honda Civic og gerðu hann að þínum, því hann er einfaldlega förunautur framtíðarinnar. Civic Sedan er gríðarlega rúmgóður og fer vel um 5 farþega. Nútímalega hönnun nýtir rými betur en áður og einnig er allt við hendina sem þú þarfnast svo aksturinn verði þér sem þægilegastur. Í farangurshólfinu má koma öllum nauðsynlegum farangri fyrir lengri sem og skemmri ferðir.
Honda vélarnar hafa alltaf verið sýningargripir fyrir framúrskarandi verkfræðikunnáttu. Stóra fréttin er að í nýja Civic Sedan bílunum leynist enn eitt undrið frá Honda, ný 140 hestafla 1.8i lítra i-VTEC vél. Vélin er byggð á næstu kynslóð i-VTEC tækninnar sem gefur enn meiri kraft og eyðslu sem þú aðeins reiknar með frá mun minni vél. Í langkeyrslu eyðir Civic um 5,1 lítra á hundraði sjálfskiptur, en ný tækni gerir sjálfskiptan Civic eyðslugrennri en beinskiptan (5,5).
Hvort sem þú velur einstaklega lipra 6 gíra beinskiptingu eða nýju 5 gíra rafstýrðu sjálfskiptinguna upplifir þú eiginleika bíls sem aðeins fást í mun dýrari bílum. Fjöðrunin og stýrisbúnaður hafa verið endurhönnuð frá grunni til að skapa einstaklega nákvæmt viðbragð og yfirburða aksturseiginleika.
|