Leita
  • Heim
  • Bílar
  • Mótorhjól
  • Aflvélar
  • Fréttir
  • Umboðsaðilar
  • Um Honda
  • Jazz
  • Civic 5 dyra
  • Civic Sedan
  • Civic Type-R
  • Insight
  • Accord Sedan
  • Accord Tourer
  • CR-V
  • Aukahlutir
  • Bæklingar
  • Notaðir bílar
  • Verðlisti

Nýr Insight - Hybrid fyrir alla

Það er markmið okkar með nýja Insight að brúa bilið milli nútíma fólksbíls og umhverfisvænni bíla framtíðarinnar. Við fengum hluta af útlitinu lánað frá Honda FCX Clarity, fyrsta löglega fjöldaframleidda vetnissellu-bíl heims.  Það er um leið aðdráttarlaus yfirlýsing um framúrskarandi hönnun sem samsvarar tæknilegum framförum, um leið og boðið er upp á rúmgott og þægilegt innanrými, sem er nauðsyn til að eiga ánægjulegan akstur.
  Insight.honda.is - kíktu á smásíðu Honda Insight.

  • Um bílinn
  • Búnaður og litir
  • Tækniupplýsingar
  • Myndasafn
  • Aukahlutir

Insight Elegance

FyrriNæsta

Fágað og nútímalegt útlitið á Insight sannar að tvinnbílar eiga sér raunverulega nærveru á vegum úti. Flæðandi línur streyma mjúklega frá framljósum aftur að bremsuljósunum sem endurspeglast í loftaflsfræðilegri yfirbyggingu. Tvískiptur afturglugginn nær fram sportlegra útliti ásamt því að hámarka plássið í farangursrýminu, um leið og hásætt bremsluljósið gefur aukið öryggi.
 
Undir áhrifum vetnissellubílsins Honda FCX Clarity, er framhluti Insight hannaður til að hámarka loftflæði, en á sama tíma að draga athyglina að framljósunum. Breitt hjólhaf og lág yfirbyggingin dregur fram sportlega stöðu. Upplyft þakið framkallar meira rými fyrir farþega og farangur, en á sama tíma dregur hönnun þess úr viðnámi og utanaðkomandi hljóðmyndun.

Bernhard ehf., Vatnagörðum 24 - 26, Reykjavík, Sími 520 1100   Skilmálar