3.07.2007 09:04

Honda bifreið með efnarafal ekið í fyrsta sinn í Evrópu

Næstu kynslóð FSX bifreiða frá Honda með efnarafal var ekið í fyrsta sinn í Evrópu á Gotlandshringnum í Svíþjóð í þessum mánuði. FSX hönnunin er lykilskref í þróun Honda á efnarafaltækni og myndar grunninn fyrir alveg nýja gerð bifreiða með efnarafal sem fyrirtækið er með í þróun. Markaðssetning í takmörkuðum mæli hefst samkvæmt áætlun á árinu 2008 í Japan og Bandaríkjunum og stefnan er að bjóða fram nýja vídd í akstursánægju á umverfisvænu farartæki sem ekki er til staðar í bensínknúnum bílum. Gotland, sem er eyja í Svíþjóð, býr yfir mikilli náttúrufegurð og stjórnvöld á staðnum eru mjög meðvituð um umhverfisvernd. Þessi atriði varðandi umhverfið gerar staðinn hinn ákjósanlegasta fyrir fyrstu kynningu í Evrópu á bifreið með efnarafal sem gefur aðeins frá sér vatn.



Til baka