Honda Insight nær toppsætinu
Honda tilkynnti í dag að hin nýja Honda Insight bifreiðin sé mest selda Hybrid- eða tvíorkubifreið í Evrópu.
Þessar niðurstöður sem greiningarfyrirtækið Jato Dynamics birtir sýnir að miðað við fyrsta heilan mánuð í sölu hefur Insight náð því að vera vinsælasta Hybrid bifreiðin á markaðnum í Evrópu í dag. Honda er ekki eingöngu að vinna sigra í Evrópu því að í Japan varð Insight fyrsti Hybrid bíllinn til að verða mest seldi fólksbíll þar í landi í apríl mánuði.
Hybrid-, vetnis- og rafmagnsbílar er stækkandi hópur í bílamarkaðnum í dag og eru þessir bílar farnir að mynda ákveðna flokka líkt og er með hefðbundna bensín- og dísilbíla. Honda hefur nú þegar tilkynnt að á næstu árum komi Hybrid útgáfa af nýjum Jazz og einnig að hafin verði fjöldaframleiðsla á Hybrid-hugmyndabílnum CR-Z.
Í þriðja sæti lenti síðan Honda Civic Hybrid, sem er líkt og Insight umhverfisvæn og eyðslugrönn Hybrid bifreið. Báðir bílarnir geta keyrt á rafmótor einum saman við ákveðnar aðstæður til að draga úr hávaða og eldsneytiseyðslu.
Honda Insight Hybrid er nú frumsýndur út um alla Evrópu, samhliða sölu á Civic Hybrid. Og sagði Ken Keir, aðstoðarforstjóri Honda Motor Europe að það væri mikið ánægjuefni að nýjum Insight Hybrid væri svona vel tekið: “Við kynntum Hybrid tæknina í Evrópu fyrir um það bil 10 árum þegar við komum með upprunalegan Insight Hybrid á markað. Þessi umhverfisvæni markaður á eftir að fara ört vaxandi og verða mjög fjölbreytilegur.”
Til baka
