7.07.2009 14:03

Dani Pedrosa og Repsol Honda liðið sigurvegar í Bandaríska GP kappakstrinum

Dani Pedrosa er fyrsti spánverjinn til að vinna á Laguna Seca brautinni og fyrsti ökumaðurinn til að vinna á Bridgestone dekkjum. Andrea Dovizioso féll í sjöunda hring og missti þar með möguleika sína á verðlaunasæti.

Sigurinn kom á besta tíma fyrir Dani Pedrosa og Repsol Honda liðið. En mikil óheppni hefur hrjáð ökumenn Repsol liðsins síðustu tólf mánuði, bæði meiðsli ökumanna og óhöpp í brautinni. En með þessum sigri bætti Pedrosa upp fyrir þessa óheppni með frábærum akstri allt frá upphafi til enda. Því miður átti liðsfélagi Pedrosa ekki við sömu heppni að etja. Upphaf keppninar leit einnig vel út fyrir liðsfélaga Pedrosa, Andrea Dovizioso. Fyrstu hringina var hann í forystuhópnum og átti góða möguleika á verðlaunasæti, en í sjöunda hring datt hann og endaði utan brautar.


Til baka