7.08.2009 10:52

CR-Z hugmyndabíllinn í framleiðslu

Nýr framkvæmdastjóri Honda, Takanobu Ito, tilkynnti nú nýverið áætlanir Honda um að hefja sölu á CR-Z sport hybrid í Japan í febrúar 2010. Upphafsdagsetning á sölu hins nýja Hybrid-Coupe í Evrópu verður kunngerð þegar dregur að lokum ársins 2009. Með því að bæta þessari gerð við Insight og Civic Hybrid sem þegar eru fáanlegir mun Honda auka enn frekar við úrval sitt af hybrid bílum. IMA kerfið mun líka vera tekinn inn í verðlaunabílinn Honda Jazz innan nokkurra ára. Þar að auki er Honda að vinna við þróun nýs hybrid kerfis sem er ætlað að vera hentugt til innsetningar í meðalstóra til stóra bíla.


Hér fyrir neðan má sjá myndir af hugmyndabílnum CR-Z.



Til baka