17.08.2009 14:49

Dani Pedrosa og Repsol Honda liðið í öðru sæti í Tékkneska kappasktrinum

Nú um helgina fór fram Tékkneski kappaksturinn í MotoGP. Um 138.000 áhorfendur fylgdust með æsispennandi keppni. Dani Pedrosa náði góðu starti enn og aftur og var fyrstur eftir beina kaflann. Nokkrum beygjum síðar náði Valentino Rossi að komast framúr Pedrosa. Pedrosa gerði allt sem hann gat til að halda í við Rossi en eftir fjóra hringi tókst Jorge Lorenzo einnig að komast framúr Pedrosa. Þegar fimm hringir voru eftir féll Lorenzo og við það komst Pedrosa í annað sætið sem hann hélt til loka.

Fallið hjá Lerenzo jók baráttu Andrea Dovizioso, Toni Elías og Loris Capirossi en þeir háðu grimma baráttu sín á milli alla keppina og nú um þriðja sætið. Þrátt fyrir að ekki hafi verið mikið svifrúm til framúraksturs náði Dovizioso að komast framúr Elías þegar fjórir hringir. Doviziose var ekki lengi í paradís, þó svo að hann sýndi frábæran akstur dugði það honum ekki því Elías náði að krækja sér framúr honum í næsta hring.

1. Valentino ROSSI, (Yamaha) 43:08,991
2. Dani PEDROSA, (Repsol Honda Team) +11,766
3. Toni ELÍAS (HONDA) +20,756
4. Andrea DOVIZIOSO (Repsol Honda Team) +21,418
5. Loris CAPIROSSI (SUZUKI) +21,538

Hér fyrir neðan má sjá myndir úr keppninni í Tékklandi.



Til baka