27.08.2009 10:36

Honda Insight fær hæstu einkunn í EuroNCAP öryggisprófunum



Nýi Honda Insight er einn af öruggustu bílum í Evrópu og setur markið hátt fyrir hybrid bifreiðar, miðað við niðurstöður síðustu prófanna Euro NCAP.

Öryggisprófanir EuroNCAP beinist að alhliða öryggi bílsins sem er birt í einfaldri stigagjöf fyrir neytendur. Kerfið mælir öryggi ökumanns og farþega við högg að framan, hlið, við stólpa og aftanákeyrslu, öryggi barna í bílstólum, öryggi fótgangandi vegfarenda sem og framboð á öryggisbúnaði fyrir ökumann. Í þessum prófunum fékk Honda Insight hámarks 5-stjörnu öryggi.

Nýja einkunnagjöfin, sem var kynnt í febrúar 2009, notar vegin stigafjölda og sameinar margar hliðar öryggisprófana bílsins: Fullorðinna (50%), barna (20%), gangandi vegfarenda (20%) og aðgengi að öðrum öryggistækjum (10%). Til að uppfylla skilyrði um öryggisprófun verða aðstöðar öryggis kerfi (VSA stöðugleikakerfi í Honda) að vera til staðar í 85% seldra bíla framleiðanda í Evrópu.

Frá því að nýja EuroNCAP einkunnagjöfin tók gildi hafa þrjár aðrar tegundir frá Honda verið prófaðar: Fimm dyra Civic, Accord og Jazz. Allar hafa þær náð hámarks fimm stjörnu öryggi. Nú bætist Insight í örugga flóru Honda bifreiða.

Niðurstöður EuroNCAP endurspegla skuldbindingar Honda um að framleiða örugg farartæki og er mikill virðingarvottur við langvarandi innanhúss öryggisprófanir Honda í rannsóknar- og þróunarmiðstöð Honda í Tochigi.


Öryggisbúnaður í Honda Insight

VSA stöðuleikastýring
Stöðugleikastýringin aðstoðar þig við að halda fullri stjórn við erfiðar aðstæður eins og þegar ekið er hratt í krappar beygjur með því að skynja og leiðrétta mögulega undir- og yfirstýringu. Sívirkur búnaðurinn vaktar hraða, inngjöf, hraða hvers hjóls, stöðu framhjólanna, hliðarátak og hliðarsveiflu bifreiðarinnar. Þegar aðstæður krefjast bregst stöðugleikastýringin við, dregur úr togi vélarinnar og notar hemlalæsivörnina til að hægja á hverju hjóli fyrir sig og heldur bílnum stöðugum. Viðbragð stöðugleikastýringarinnar er svo snöggt að ökumaðurinn tekur varla eftir nokkru.

Bremsur
14" loftkældir diskar að framan og aftan tryggja stöðugleika, sem er aukinn ennfrekar með ABS bremsukerfi, rafstýrðri bremsudreifingu og hjálparhemlun.

Advanced Compatibility Engineering (ACE)
Advanced Compatability Engineering (ACE) - ACE búnaðurinn dreifir og tekur á sig höggþungann á stærra svæði en ella og ver með því farþegarýmið og eykur öryggi fyrir alla farþegana. Að auki jafnar ACE ójöfnuð milli misstórra bifreiða. Hönnun bíla með ACE minnkar áhrif áreksturs við aðra bíla, jafnvel við smæstu smábíla.

Öryggi gangandi vegfarenda
Við hönnun nýja Honda Insight var öryggi gangandi vegfarenda haft að leiðarljósi. Rannsóknir hafa sýnt að með þessu eru lífslíkur gangandi vegfarenda við árekstur meiri. Meðal atriða má nefna, hönnun rúðuþurrkna, höggdeyfandi frambretti sem og aukið krumpusvæði fyrir vélarhlíf.

Loftpúðar og sætisbelti
Allar útfærslur af Insight eru útbúnar með SRS (Supplemental Restraint System) loftpúðakerfi SRS kerfið samanstendur af loftpúðum, bæði fyrir ökumann og farþega í framsæti, loftpúðagardínu sem nær fyrir hliðarglugga til að tryggja öryggi þeirra. Þriggja punkta ELR (Emergency Locking Retractor) öryggisbelti er fyrir öll sæti. Framsætin eru útbúin með tveggja þrepa EA (Energy Absorption) sætisbeltastrekkjara. Að auki eru ISOFIX barnastólafestingar til að tryggja örugga og rétta staðsetningu barnabílstóls.

Virkir höfuðpúðar
Honda Insight er einnig útbúinn með virkum höfuðpúðum að framan sem draga úr líkum á hálsmeiðslum við aftanákeyrslu. Um leið og farþegi þrýstist í sætisbakið fer höfuðpúðinn fram á móti höfðinu til að draga úr höggi og hreyfilengd.



Til baka