9.09.2009 14:09

Ný Honda sjálfskipting fyrir mótorhjól

Ný tveggja kúplinga gírskipting frá Honda ætluð fyrir stærri mótorhjól
Honda kynnti nú í byrjun september að fyrirtækið væri búið að þróa sjálfskiptingu fyrir mótorhjól, þá fyrstu í heiminum. Sjálfskiptingin sem er tveggja kúplinga og er ætluð stærri götuhjólum. Nýja sjálfskiptingin gefur ökumönnum sportlegan akstur, í sambland við auðvelda meðhöndlun og framúrskarandi gírskiptingu. Sem  skilar sér í sambærilegri eða minni eldsneytiseyðslu miðað við hefðbunda gírskiptingu á mótorhjólum. Nýja VFR mótorhjólið sem kemur á markað í Evrópu og Norður-Ameríku 2010, verður fyrsta hjólið með nýju sjálfskiptingunni.

Tveggja kúplinga sjálfskiptingin er sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum í dag, en hún einkennist að léttri og fyrirferðalítilli hönnun og er samofin hönnun vélarinnar án þess að gera stórvægilegar breytingar á útliti hennar. Með nýju skiptingunni býðst mun nákvæmari hröðun þökk sé tölvustýrðri tækni sem tryggir mjúka og snuðrulausa gírskiptingu. Til að koma á móts við kröfur ökumanna í breytilegum akstursskilyrðum er skiptingu með 3 stillingar; tvær gerðir að sjálfskiptingu (D-stilling fyrir venjulega meðhöndlum og S-stilling fyrir sportlegan akstur) og 6 gíra beinskiptingu, með sömu eiginleika og venjulegt mótorhjól. Á næstu árum ætlar Honda að bjóða upp á nýju sjálfskiptuna í fleiri gerðum af stærri mótorhjólum, þá sérstaklega sporthjólunum.

Helstu eiginleikar
Nýja gírskiptingin er með tveimur kúplingum. Fyrri kúplingin virkar á oddatölugírum (1., 3., og 5) og sú seinni á gírum með sléttar tölur (2., 4., og 6.) Kúplingarnar vinna síðan til skiptis þegar skipt er um gír. Til dæmis þegar skipt eru úr fyrsta gír í annan. Þá nemur tölvan gírskiptinguna, virkjar annan gír, því næst aftengir hún fyrsta gír um leið og hún slakar á kúplingunni á öðrum gír. Við þetta næst mjúk og fumlaus gírskipting. Á meðan sumar núverandi tveggja kúplinga gírskiptingar eru fyrirferðamiklar er nýja skiptingin með upprunalegri tækni eins og tvöföld sköft, en framúrstefnuleg “línu” kúplingin og vökvarásir undir vélinni ná fram fyrirferðalítilli hönnun. Léttleiki og smæð er síðan fullkomnuð með breyttri hönnun drifskafta byggða á hefðbundinni gírskiptitromlu. Fínstillt tölvustýrð gírskiptingin nær betri eldsneytiseyðslu miðað við hefðbundin hjól og gefur hjólinu sambland af sportlegum og umhverfisvænum akstri.



Til baka