28.09.2009 16:04

Honda þróar byltingakennt einstaklingsfarartæki



Fyrsta farartæki heims með 360° hreyfanleika*

Í leit að samhæfingu einstaklings og véla hefur Honda þróað nýtt samgöngutækni fyrir einstaklinga, U3-X, fyrirferðalítið tilraunahjól sem ferðast óhindrað í allar áttir, rétt eins og göngulag mannsins – áfram, afturábak, til hliðar og á ská. Er það markmið Honda að halda áfram rannsóknum og þróunum á hjólinu. Þar á meðal við raunverulegar aðstæður, til þess að undirstrika notagildi þess.

Á nýja farartækinu er hægt að stjórna hraða og beygja til allra átta eingöngu með því að hreyfa efri part likamans. Þessi tækni var náð með því að styðjast við jafnvægistækni sem ASIMO vélmenið notar við gang sinn og nýju fjölstefnu aksturskerfi Honda (HOT Drive System), sem gerir hjólinu kleift að ferðast í allar áttir án þess að snúa því, ekki bara áfram og afturábak eins og hefðbundin farartæki. Til viðbótar var hjólið hannað til að vera þægilegt í umgengni bæði fyrir notenda og þá sem eru í návist við það.
Á bílasýningunni í Tokyo sem haldin er í lok október ætlar Honda að kynna þar hjólið enn frekar.

*Byggt á rannsóknum Honda.

Helstu tækniupplýsingar tilraunamódels U3-X:

Lengd × Breidd × Hæð(mm) 315×160×650
Þyngd undir 10kg
Tegund rafhlöðu Lithium ion rafhlaða
Starfræksla (með fullhlaðna rafhlöðu) 1 klukkustund


Til baka