29.10.2009 09:57

Insight Hybrid valinn í Frægðarhöll fyrir Bíl ársins 2009 - 2010 í Japan

Honda Motor Co., Ltd. tilkynnti í dag 29. október að Insight hefði hlotið titilinn Bíll ársins 2009 – 2010 af kosninganefnd Frægðarhallar fyrir bíl ársins í Japan. Samtökin sem ekki eru rekin í gróðaskyni segja að þrjár meginástæður hafi ráðið úrslitum um val þeirra:

  1. Hugmyndafræðin á bakvið markaðssetningu Hybrid-tækni á viðráðanlegu verði
  2. Jafnvægi aksturseiginleika og umhverfiseiginleika í Insight.
  3. Jafnvægi eiginleika og eldsneytiseyðslu við akstur á meiri hraða með aðstoð IMA (Intergrated Motor Assist) hybrid-kerfi Honda.

Hannaður til að setja ný viðmið í flokki minni bíla fyrir komandi kynslóðir býður Insight framúrskarandi umhverfiseiginleika með einstakri hybrid-tækni sem Honda hefur þróað frá grunni, skemmtilegan og móttækilegan akstur og áhrifamikla og fjölbreytta hönnun. Honda Insight hefur verið gríðarlega vel tekið í Japan og í apríl á þessu ári var Insight fyrsta Hybrid bifreiðin til þess að vera mest selda bifreið Japans.



Til baka