25.08.2010 13:30

Honda CR-Z fær toppeinkunn hjá Euro NCAP

Honda CR-Z er einn af öruggustu bílum Evrópu samkvæmt nýjustu öryggisprófinum Euro NCAP og fylgir hann í fótspor Honda Insight.

Við öryggisprófanir Euro NCAP eer lögð áhersla á almennt öryggi bifreiðarinn og niðurstaðan síðan birt í einfaldri stjörnugjöf. Prófanirnar taka mið af öryggi ökumanns og farþega við árekstur á framhluta, hlið, umferðarstólpa og aftanákeyrslu, öryggi barna, gangandi farþega auk virks öryggisbúnaðar. Honda CR-Z hlaut 5 stjörni hámarkseinkunn.

Nýja einkunnakerfið sem kynnt var í febrúar 2009, byggir á samanlögðum stigum mismunandi öryggisþátta bílsins: Öryggi fullorðinna (50%), öryggi barna (20%), öryggi gangangi vegfarenda (20%) og akstursöryggiskerfa (10%). Til að fá viðurkennda einkunnagjöf þarf bifreiðin að vera útbúin stöðugleikabúnaði (VSA í Honda) en samkvæmt reglugerð Evrópusambandsins er hann staðalbúnaður í 90% bíla framleiddra árið 2010.

Honda CR-Z er nýjasta fjöðrin í hatti Honda sem fær hæðstu einkunn. Frá því að nýja einkunnagjöf EuroNCAP var kynnt hafa 4 bifreiðir verið öryggisprófaðar; Civic, Accord, Jazz og núna síðast Insight. Allar fimm tegundirnar hafa hlotið 5 stjörnu öryggisprófun, Honda Insight hlaut titilinn “öruggasta Hybrid bifreiðin” og var í öðru sæti yfir bifreiðar sem prófaðar voru árið 2009

Niðurstöður EuroNCAP endurspegla skuldbindingar Honda um að framleiða örugg farartæki og er mikill virðingarvottur við langvarandi innanhúss öryggisprófanir Honda í rannsóknar- og þróunarmiðstöð sinni í Tochigi, sem var opnuð árið 2001.

Öryggisbúnaður í Honda CR-Z

VSA stöðugleikakerfi

VSA stöðugleikakerfið er hanna til að aðstoða ökumann að halda fullri stjórn við erfiðar aðstæður, eins og þegar ekið er hratt í krappar beygjur með því að skynja og leiðrétta mögulega undir- og yfirstýringu. Sívirkur búnaðurinn vaktar hraða, inngjöf, hraða hvers hjóls, stöðu framhjólanna, hliðarátak og hliðarsveiflu bifreiðarinnar.

Bremsur
Loftkældir 14” diskar að framan og aftan tryggja stöðugleika, sem er aukinn ennfrekar með ABS bremsukerfi, rafstýrðri bremsudreifingu (EBD) og hjálparhemlun (BA).

Advanced Compatibility Engineering (ACE)
Advanced Compatability Engineering (ACE) - ACE búnaðurinn dreifir og tekur á sig höggþungann á stærra svæði en ella og ver með því farþegarýmið og eykur öryggi fyrir alla farþegana. Að auki jafnar ACE ójöfnuð milli misstórra bifreiða. Hönnun bíla með ACE minnkar áhrif áreksturs við aðra bíla, jafnvel við smæstu smábíla.

Öryggi gangandi vegfarenda
Við hönnun nýja Honda CR-Z var öryggi gangandi vegfarenda haft að leiðarljósi. Rannsóknir hafa sýnt að með þessu eru lífslíkur gangandi vegfarenda við árekstur meiri. Meðal atriða má nefna, hönnun rúðuþurrkna, höggdeyfandi frambretti sem og aukið krumpusvæði fyrir vélarhlíf.

Loftpúðar og sætisbelti
Allar útfærslur af Insight eru útbúnar með SRS (Supplemental Restraint System) loftpúðakerfi SRS kerfið samanstendur af loftpúðum, bæði fyrir ökumann og farþega í framsæti, loftpúðagardínu sem nær fyrir hliðarglugga til að tryggja öryggi þeirra. Þriggja punkta ELR (Emergency Locking Retractor) öryggisbelti er fyrir öll sæti. Framsætin eru útbúin með tveggja þrepa EA (Energy Absorption) sætisbeltastrekkjara. Að auki eru ISOFIX barnastólafestingar til að tryggja örugga og rétta staðsetningu barnabílstóls.

Virkir höfuðpúðar
Honda CR-Z er einnig útbúinn með virkum höfuðpúðum að framan sem draga úr líkum á hálsmeiðslum við aftanákeyrslu. Um leið og farþegi þrýstist í sætisbakið fer höfuðpúðinn fram á móti höfðinu til að draga úr höggi og hreyfilengd.



Til baka