Honda Jazz Hybrid - umhverfisvænn og hagkvæmur
Honda frumsýnir nýjan Jazz á bílasýningunni í París núna í september og gefur hann skýra mynd af áframhaldandi skuldbindingu Honda á hybrid tækni.
Honda Jazz er fyrsti smábíllinn sem er bæði til með hefðbundinn eldsneytisgjafa og Hybrid tækni. Hann verður er útbúinn sömu IMA hybrid tækni og er í Insight og umhverfisvæna sportbílnum CR-Z og er þessi háþróaða tæknin byggð reynslu og áreiðanleika. Með nærri tveggja áratuga þróunarferli og tíu ára sölu á hefur Honda IMA hybrid kerfið sannað áreiðanleika og sveigjanleika sinn, en nú í dag eru yfir fimm hundruð þúsund bifreiðar útbúnar IMA hybrid tækni og eru státa af lágum CO2 útblæstri og lítilli eldsneytiseyðslu.
Nýi Jazz Hybrid verður útbúinn 1,3 lítra i-VTEC bensínvél eins og Insight Hybrid, með CVT sjálfskiptingu og IMA rafmótorinn staðsettann mitt á milli. Líkt og með Insight Hybrid og Civic Hybrid verður hægt að keyra Jazz hybrid á rafmagnsmótor eingöngu við miðlungs og hægan akstur.
Í ásýnd er Jazz Hybrid örlítið frábrugðinn venjulegum Jazz, ný framljós með blárri umgjörð, bjartari afturljós, nýtt framgrill og endurhannaður stuðari. Nýi Jazz Hybrid verður fáanlegur í sömu litum og hefðbundinn Jazz og í sérstökum Lime Green metallic Hybrid lit.
Honda Jazz Hybrid fær einnig létta andlitslyftingu að innan, dekkra mælaborð gefur betri ásýnd á alla mæla og útvarp. Auk þess sem Jazz Hybrid verður fáanlegur leðurinnréttingu, en er það í fyrsta skipti sem Jazz er fáanlegur með leðurinnréttingu í Evrópu. Honda Jazz Hybrid er áætlaður í sölu fyrri hluta árs 2011.
Ásamt því að kynna Jazz Hybrid á bílasýningunni í París ætlar Honda að kynna viðhafnarútgáfu af Civic, 2011 árgerðir af Insight, CR-Z, Jazz, CR-V, Accord og Accord Tourer ásamt nýjasta mótorhjólinu VFR1200F með hinni margrómuðu V4 vél og umhverfisvæna PCX vespu með lægri útblástursgildum og hægagangs-stoppi
Til baka
