22.11.2011 10:52

Honda kynnir mótorhjólalínuna 2012

Crosstourer- ævintýra-ferðahjól með nýju einstöku V4 Honda vélinni. Honda Crosstourer var fyrst kynnt til sögunnar sem hugmyndahjól (concept) árið 2010 og gerir 1200cc vélin, ævintýraleg hönnunin, löng fjöðrunin, upprétt ásetan, spólvörnin, ABS (combined) og valmöguleikinn á Dual Clutch sjálfskiptingunni hjólið að frábærum kosti alhliða ferðahjóls.

Honda Integra: Nýtt hjól með einstaka stöðugleika mótorhjóls, með hlífum, þægindum og útliti stórrar vespu plús Dual Clutch skiptingar með glænýja og einstaklega hagkvæma  670cc Tveggja cyl. vél með mikið tog.

Tvö ný millistærðarhjól á hagkvæmu verði- NC700X og NC700S. Þessi hjól eru mjög notendavæn og eru í ferðahjóla og sporthjólastíl og hugsuð fyrir hvort sem er daglega notkun sem aðal farartæki eða áhugamaninn sem hjóla bara um helgar.

Honda býður nú uppá Dual Clutch skiptinguna í 5 módelum: VFR1200F, Crosstourer, Integra (fyrsta hjólið til að hafa skiptinguna sem staðalbúnað), NC700X og NC700S.
Dual Clutch skiptingin sem fyrist kom á markaðinn í VFR1200F árið 2010, býður upp á fumlausa skiptingu milli gíra á bæði handskiptri stillingu og tveimur kerfum fyrir sjálfskiptingu. 

Uppfærsla á tveimur sannanlega táknrænum flaggskipum- Honda Gold Wing lúxus ferðahjólinu, með 36 ára sögu og 20 ára afmælisútgáfu af hinu klassíska CBR1000RR Fireblade.

Einnig voru kynnt til sögunnar nýjar glæsilegar vespur,  Vision 50, fyrsta nýja 50cc módelið frá Honda í Evrópu í næstum 10 ár og Vision og Vave 110cc

Til viðbótar við alls 7 ný módel (Integra, NC700X, NC700S, Crosstourer, Vision 50, Vision, og Wave110i), voru uppfærslur á 6 hjólum (CBR1000RR Fireblade, GL1800 Gold Wing, VFR1200F, CFR450R, CRF250R and CRF150R) og alls verða 16 módel boðin með nýjum litum 2012.



Til baka