7.02.2012 14:43

Lukkuleikur Bernhard

Í tilefni af því að hinir sívinsælu Honda CR-V jepplingar hafa verið í sölu hjá Bernhard ehf í 15 ár, bauð fyrirtækið í samstarfi við þjónustuaðila Honda  uppá nýja gerð af þjónustuskoðun fyrir Honda CR-V af árgerðum 2002-2006. Þessi nýja þjónustuskoðun var  boðin á landsvísu og lentu nöfn Þeirra eigenda Honda CR-V bifreiða,  sem tóku þátt,  í lukkupotti þar sem dregið var um tíu  50.000 króna eldsneytisúttektir hjá Olís bensínstöðvum um land allt. Þátttaka var það góð að Bernhard ehf hyggst halda áfram að bjóða uppá nýjungar í þjónustuskoðunum í framtíðinni.

Þegar hafa 10 heppnir eigendur Honda CR-V verið dregnir úr lukkupotti og er það von okkar hjá Bernhard  að eldsneytisúttektirnar komi sér vel fyrir þá heppnu og óskum við þeim innilega til hamingju með vinningana. Eins og áður hefur komið fram hefur Honda CR-V verið í sölu á Íslandi í 15 ár og hefur á þeim tíma notið fádæma vinsælda enda traustur fjórhjóla drifinn,  vel útbúinn, rúmgóður jepplingur,  sem nýtist frábærlega ört stækkandi hópi ánægðra viðskiptavina Bernhard ehf,  hvort sem er við akstur innan- eða utanbæjar.

Bernhard ehf heldur upp á 50 ára afmæli sitt nú 2012 og verður bryddað upp á ýmsu til hátíðabrigða.  Þar á meðal eru 3 frumsýningar á nýjum bílum og má þar á meðal nefna nýjan Civic og Peugeot 208.   Bernhard ehf hefur verið í eigu sömu aðila frá 1962 og setur það fyrirtækið í sérstöðu á sínu sviði.
Boðið var upp á lukkuleikinn í samstarfi við Olís og hefur Olís bætt um betur og sett frímiða frá matsölustaðnum Quiznos með hverjum vinningi.

Viðkomandi einstaklingar voru dregnir út í lukkuleiknum:
Þórhallur Þórarinsson, PL-483
Guðmundur Ægir Theódórsson, RO-651
Ásdís Björk Bragadóttir, SH-707
Jóhannes Kristbjörnsson, RA-780
Guðmundur Vésteinsson, ZX-193
Baldur Einarsson, SR-946
Jón Sigurðsson, TM-640
Rannveig Hestnes, JK-574
Kristinn R.Guðmundsson, MG-381
Gísli Gíslason, NL-494

Á myndinni sést Haraldur Þorsteinsson framkvæmdastjóri þjónustusvið Bernhard ehf., afhenda Gísla Gíslasyni eldsneytisúttektina.



Til baka