22.08.2007 18:17

Auglýsingar Honda í Bretlandi fá heimsviðurkenningu

Honda hefur hlotið hinn eftirsótta titil „Auglýsandi ársins“ á „Cannes Lions“, sem er alþjóðleg árleg auglýsingahátíð. Viðurkenningin er til heiðurs fyrirtækjum sem hafa stuðlað að og eflt nýsköpun og skapandi starf í markaðssetingu sinni. Ken Keir, aðal-aðstoðarforstjóri Honda í Evrópu kom fram á sviðinu með ASIMO vélmenninu til að taka á móti verðlaunagripnum. Cannes Lions-hátíðin er almennt talin ein mest metna verðlaunaveiting um allan heim og stærsta samkoma auglýsingafólks og auglýsenda í heiminum.



Til baka