Verkfræðingar Honda fá öryggisverðlaun fyrir framfarir í öryggi bifreiða
Á 20. alþjóðlegu tækniráðstefnunni um aukið öryggi farartækja (ESV), sem haldin var í Lyon, Frakklandi á þessu ári voru tveir verkfræðingar frá Honda valdir sem verðlaunahafar á viðurkenningu ríkisstjórnar Bandaríkjanna fyrir frábæran árangur í hönnun með tilliti til öryggis. Bifhjólaverkfræðingurinn Satoshi Iijima var heiðraður fyrir störf sín í meira en 30 ár á sviði rannsókna á öryggi í bifhjólaslysum og þróun á nýjum öryggisbúnaði bifhjóla. Þar bar hæst að Honda hóf notkun á sérhönnuðum loftpúðum fyrir bifhjól. Douglas C. Longhitano hlaut viðurkenningu fyrir framlag sitt til öryggis í bifreiðum, sérstaklega varðandi verndun fótgangandi vegfarenda í árekstri.
Þessi þekkta viðurkenning, Award for Safety Engineering Excellence, er veitt annað hvert ár af Umferðaröryggismálastofnun Bandaríkjanna sem viðurkenning og þakkir fyrir einstakt framlag til tæknihönnunar á sviði öryggis farartækja.
Til baka
