Honda tilkynnir um markmið í minnkun umhverfisáhrifa í framleiðslustarfsemi í Japan fyrir árið 2010
Honda eykur sífellt átak sitt til að draga úr umhverfisáhrifum á víðtækari sviðum framleiðslustarfsemi með því að setja fram að eigin frumkvæði átta markmið fyrir framleiðslustarfsemi í Japan. Fyrir fjárhagsárið 2010 mun Honda leitast við að:
- Draga úr CO2 útblæstri í flutningastarfsemi um 10% af söluhagnaði með því að gera endurbætur í flutningum.
- Draga úr VOC útgufun um 35% fyrir hvert málað svæði á bifreið með aukinni notkun á lakki á vatnsgrunni ásamt meiri hagkvæmni og minni úrgangsefnum.
- Minnka sorpurðun svo hún verði engin hjá öllum 48 aðalverksmiðjunum með því að taka upp flokkun úrgangs og auka endurvinnslu.
- Draga úr úrgangi um 10% hjá framleiðslueiningum og vatnsnotkun um 30% Minnka umbúðir um 45% miðað við söluhagnað
- Bæta endurvinnslu við förgun um 70% fyrir bíla fyrir fjárhagsárið 2010 og 95% eða meira fyrir bifhjól fyrir árið 2015.
Til baka
