4.01.2008 09:16

ASIMO aðstoðar vísindamenn í leit að greindinni

Rannsóknastofnunin Honda Research Institute Europe (HRI-EU) og hin nýja „Institute for Cognition and Robotics (CoR-Lab)“ við Bielefeld-háskólann hafa undirritað tímamótasamning um samstarf. Í samræmi við það samkomulag hefur Honda látið CoR-Lab í té tvö ASIMO vélmenni með hinum svokallaða „whole body movement“ hugbúnaði sem þróaður var af HRI-EU. Mismunandi sérgreinar munu sameinast í náttúruvísinda- verkfræði- og félagsfræðilegum rannsóknum og notkun á fyrirliggjandi þekkingu um hvernig heilinn virkar, undirliggjandi byggingu og verkun, til að þróa greind kerfi með svipaða getu. Honda styrkir einnig framhaldsnám í CoR-Lab til að mennta 15 PhD-stúdenta og unga vísindamenn í sameiginlegum rannsóknarverkefnum. Þetta er í fyrsta skipti sem evrópskur háskóli hefur aðgang að ASIMO til rannsókna. Bielefeld-háskólinn er meðal leiðandi menntastofnana í Evrópu á sviði vitsmuna- og þjarkafræði.


Til baka