4.01.2008 09:18

Honda þróar HFT, nýja sjálfskiptingu fyrir mótorhjól

Honda hefur þróað hina mannvænu HFT-sjálfskiptingu (Human-Friendly Transmission) fyrir mótorhjól með IVT-skiptingu (infinitely variable hydraulic mechanical transmission). HFT-sjálfskipting gerir aksturinn afslappaðan með hraðri skiptingu og frábærri nýtingu á krafti. HFT-sjálfskipting verður sett í DN-01, nýtt mótorhjól sem kynnt var á 40. Tokyo-bílasýningunni.

Kerfið samanstendur í grunnþáttum af olíudælu sem umbreytir vélaraflinu í vökvaþrýsting og olíumótor sem umbreytir vökvaþrýstingnum aftur í afl. Báðir hlutar hafa fjölda stimpla, deililoka og skáplötu fyrir stimplavinnslu en strokkarnir eru sambyggðir við útásinn. HFT-sjálfskiptingin er einnig með heimsins fyrsta* læsibúnað fyrir IVT-skiptingu (infinitely variable hydraulic mechanical transmission). Þessi læsibúnaður lágmarkar tap á krafti við skiptingar og eykur þannig sparneytni.

* Byggt á rannsóknum Honda



Til baka