8.01.2008 09:48

Nýr keppnisbíll Honda í Formúlu 1 kynntur

Þriðjudaginn 29. janúar nk. mun lið Honda í Formúlu 1 kappakstrinum, Honda Racing F1, kynna nýjan Honda RA108 Formúlu 1 bíl í bresku höfuðstöðvum sínum í Brackley. Nick Fry, Ross Brown ásamt ökumönnum liðsins þeim Jenson Button og Rubens Barrichello verða á svæðinu til að kynna bílinn sem og ræða um niðurstöður prófanna á honum og einnig um yfirstandandi keppnistímabil.



Til baka