28.01.2008 11:44

Honda fremst í flokki í vaxandi bifreiðasölu í Evrópu

Honda hefur stungið alla bílaframleiðendur af hvað varðar söluaukningu fyrir árið 2007, samkvæmt nýjustu tölum. Í dag tilkynnti fyrirtækið einnig að öll met frá upphafi voru slegin hvað varðar sölu bíla á Evrópska sölusvæðinu: heildartalan var 398.960 seldir bílar sem er 21,5% aukning frá árinu 2006. Þetta er fjórða metsöluárið í röð hjá Honda í Evrópu, en sölumet voru slegin í 32 af 37 löndum sem tilheyra sölusvæðinu Evrópu. Sala hefur færst í mikinn vöxt almennt á öllu svæðinu, en mest aukning hefur orðið á vissum Vestur-Evrópusvæðum ásamt upprennandi mörkuðum í Mið- og Austur-Evrópu. Sala í Rúmeníu, Úkraínu og Rússlandi hefur meira en tvöfaldast í öllum löndunum. Í Svíþjóð hefur sala aukist um 60% og um 55% í Noregi. Frakkland, Grikkland og Pólland fylgja fast á eftir með yfir 30% aukningu og Spánn, Holland og Danmörk hafa aukið kaup sín milli ára yfir 20%.

Civic og CR-V færa Honda bestu sölutölur frá upphafi

Vinsældir á Civic bifreiðinni, sem er aðalbíll Honda í Evrópu, hafa gegnt lykilhlutverki í þessari velgengni, en sala yfir allt svæðið hefur aukist um 41,7% upp í 160.062 eintök yfir árið. CR-V kom á markað í byrjun 2006 og sala á honum jókst einnig um 77,3% upp í 90.554 eintök. Sala á CR-V með dísilvél hefur aukist um 72,7 % og er þetta nú mest seldi dísilbíll Honda. „Það er mikið gleðiefni að sjá hversu margir fleiri evrópskir viðskiptavinir hafa valið Honda-vörur,“ sagði Shigeru Takagi, forseti Honda Motor Europe Ltd. „2008 verður annað spennandi ár fyrir okkur því við kynnum hinn nýja Accord í sumar og hinn nýja Jazz á seinni helmingi ársins. Við erum þess fullvissir að með þessum nýju vörum höldum við áfram að fara fram úr væntingum viðskiptavina okkar og náum þannig að viðhalda þessum ljúfa meðbyr hjá Honda.“

Yfirlit yfir sölumet Honda í Evrópu 2007:

  • Sölumet frá upphafi slegið með 21,5% aukningu upp í 398.960 eintök.
  • Fjórða metsöluárið í röð.
  • Sjöunda söluaukningarárið í röð.
  • Met slegið á sölu Honda CR-V um 63,6% upp í 90.554 miðað við síðasta metsöluár (2005).
  • Öll met slegin í sölu á Civic Hybrid, söluaukning 206,6% upp í 10.512 eintök.


Til baka