Söluaukning á bílum í Evrópu mest hjá Honda
Honda tilkynnti að öll met frá upphafi voru slegin hvað varðar sölu bíla á Evrópska sölusvæðinu, en 398.579 bílar voru seldir árið 2007 sem er 21,4% aukning frá árinu 2006. Þetta er fjórða metsöluárið í röð hjá Honda í Evrópu, en sölumet voru slegin í 32 af 37 löndum á sölusvæðinu. Sala hefur færst í mikinn vöxt almennt á öllu svæðinu, en mest aukning hefur orðið á vissum Vestur-Evrópusvæðum ásamt upprennandi mörkuðum í Mið- og Austur-Evrópu.
Vinsældir á Civic bifreiðinni, sem er aðalbíll Honda í Evrópu, hafa gegnt lykilhlutverki í þessari velgengni, en sala yfir allt svæðið hefur aukist um 41,7% upp í 160.079 eintök yfir árið. CR-V kom á markað í byrjun 2007 og sala á honum jókst einnig um 77,0% upp í 90.419 eintök. Sala á CR-V með dísilvél hefur aukist um 73,1% og er þetta nú mest seldi dísilbíll Honda.
Til baka
