Honda Aircraft Company færir út kvíarnar með sölu á HondaJet í Evrópu
Sala í Evrópu hefst í maí á árlegri ráðstefnu EBACE í Genf í Sviss
GREENSBORO, Norður-Karólínufylki, Bandaríkjunum, 17. apríl 2008 – Honda Aircraft Company, Inc., tilkynnti í dag að sala á HondaJet hæfist í Evrópu í byrjun maímánaðar á hinni árlegu ráðstefnu EBACE (European Business Aviation Convention & Exhibition) í Genf í Sviss. Ákvörðun Honda um að auka söluumsvif á þessari háþróuðu léttþotu sinni yfir á hinn ört vaxandi Evrópumarkað er svar við mikilli eftirspurn eftir HondaJet allt frá því að fyrsta þotan var boðin til sölu árið 2006 í Bandaríkjunum.
HondaJet er fremst í flokki hvað varðar kraft, eldsneytissparnað, stærð farþega- og farangursrýmis og hentar Evrópskum eigendum og rekstraraðilum á léttþotum í einka- og fyrirtækjageirum einkar vel. HondaJet nær 420KTAS (773 km/klst.) ferða hraða og stjórnendaútgáfa hennar er búin glæsilegri aðstöðu fyrir fimm farþega og tvo áhafnarmeðlimi, þar á meðal einkasalerni.
HondaJet skartar mörgum tækninýjungum hvað varðar flughönnun, þar á meðal einstakri festingu þotuhreyfils ofan á væng sem bætir stórlega afl og sparneytni þotunnar með því að draga umtalsvert úr loftmótstöðu í flugi. Þessi nýstárlega nálgun við hönnun grindarinnar dregur einnig úr hávaða fyrir fólk niðri á jörðinni og veitir meira pláss í farþega- og farangursrými. HondaJet er knúin tveimur gífurlega sparneytnum GE Honda HF120 tvístreymisþotuhreyflum.
„Við erum mjög spenntir yfir að hefja sölu í Evrópu, þar sem við höfum fengið mikinn og stöðugan straum fyrirspurna frá áhugasömum viðskiptavinum sem fá nú tækifæri til að panta HondaJet,“ sagði Michimasa Fujino, forseti og framkvæmdastjóri Honda Aircraft Company. „Fyrirtækið helgar sig því að veita viðskiptavinum í Evrópu vöru sem er fremst meðal jafningja ásamt sölu- og þjónustukerfi sem fer fram úr væntingum eigenda og þeim sem ferðast með einkaþotum.“
Honda færði nýverið út kvíarnar hvað varðar sölu- og þjónustustefnu fyrir Mexíkó og Kanada. „Þessi stækkun hjá HondaJet í Evrópu er mikilvægt skref í áframhaldandi þróun á viðskiptaáætlun okkar, sem leitast við að svara mikilli eftirspurn um heim allan eftir HondaJet,“ sagði Fujino.
Frekari upplýsingar varðandi sölu- og þjónustustefnu á HondaJet í Evrópu ásamt afhendingartímum kemur frá Honda þann 20. maí 2008 hjá EBACE.
Um HondaJet
Fyrirtækið Honda Aircraft Company hóf sölu á HondaJet í Bandaríkjunum í október 2006 og fljótt hlóðust upp pantanir á rúmlega 100 eintökum. HondaJet er fyrsta farþegaflugvél Honda og staðfestir orðspor fyrirtækisins um vörur sem sameina kraft og sparneytni ásamt því að vera fremst í flokki hvað varðar ferðahraða, eldsneytissparnað, meira farangursrými og pláss fyrir farþega miðað við sambærilegar einkaþotur. Mestur hluti samsetningar og prófana á frumgerðinni af HondaJet fór fram í aðstöðu fyrirtækisins í Greensboro, Norður-Karólínufylki í Bandaríkjunum, sem opnaði árið 2001 sem viðbót við rannsókna- og þróunaraðstöðu Honda um heim allan.
Í nánu samstarfi við flugmálastjórn Bandaríkjanna (FAA) gerir Honda Aircraft Company ráð fyrir að fyrsta prufuflugið á tilbúinni léttþotu verði í byrjun árs 2009, en fyrirætlað er að ná viðurkenningu fyrir þessa gerð árið 2010. Áætlun fyrirtækisins hljóðar upp á að hefja afhendingu á HondaJet þotum í Bandaríkjunum til viðskiptavina árið 2010. Leyfisskírteini frá Flugmálastjórn Evrópu (EASA) er í vinnslu samhliða umsókn og skráningu hjá FAA.
Allar afhendingar á HondaJet til viðskiptavina fara fram á nýrri afhendingarmiðstöð Honda Aircraft Company sem verið er að byggja ásamt nýrri heimsbækistöð rannsókna- og þróunar og verksmiðju á Piedmont Triad alþjóðlega flugvellinum í Greensboro í Norður-Karólínufylki. Heimsbækistöðin og rannsókna- og þróunarmiðstöðin eiga að klárast árið 2008 og verksmiðjuhlutinn og afhendingarmiðstöðin í lok árs 2009.
Þjálfun HondaJet flugmanna um heim allan fer fram í samvinnu við „Flight Safety International“, meðal verkefna verður þróun á D-gerð algjörlega hreyfanlegs flughermis fyrir HondaJet. Fyrsti flughermirinn verður settur upp í nýjum höfuðstöðum Honda Aircraft Company. Frekari þjálfunarstöðvar verða settar upp í framtíðinni eftir því sem sala á HondaJet eykst.
Honda Aircraft Company, Inc., er dótturfyrirtæki í fullri eign Honda Motor Co., Ltd. Honda var stofnað í Japan árið 1948 og hóf starfsemi í Bandaríkjunum árið 1959 með stofnun American Honda Motor Co., Inc., fyrsta dótturfyrirtæki Honda utan Japans.
Fræðist meira um HondaJet á www.hondajet.com.
Til baka
