Nýjasti Asimo hleypur til Lissabon á alþjóðlegu bílasýninguna
Hinn nýi ASIMO kom nýlega fram á 2008 bílasýningunni í Portúgal (2008 Salão Internacional do Automóvel de Portugal). Þetta var í fyrsta sinn sem þessi nýjasta útgáfa af ASIMO hefur ferðast til Portúgals, en vélmennið frækna kom fram 28 sinnum á risastóru, sérbyggðu sviði í þessari 11 daga heimsókn; talið er að um 250.000 gestir hafi komið á þessa alþjóðlegu bílasýningu. Áherslan þetta árið var lögð á „Akstur til framtíðar“ (Driving to the Future) og til viðbótar við ASIMO sýndi Honda nýjustu tækni til umhverfisverndar, þar á meðal: frumhugmyndir að litlum tvinnsportbílum (Small Hybrid Sports); nýjan Accord 2008 (sem, líkt og ASIMO, var sýndur í fyrsta sinn í Portúgal) búinn hinni glænýju i-DTEC næstu kynslóð hreinna dísilvéla, og framleitt eintak af Civic Hybrid.
Til baka
