Honda eykur þjónustu í kappakstursgeiranum á 2008 keppnistímabilinu
Þjónustuver Honda fyrir kappakstur (Honda Racing Customer Support) var stofnað í samvinnu við JAS Motorsport árið 2002 með það fyrir augum að deila gleði og ástríðu Honda á kappakstri með viðskiptavinum sínum. Þar býður JAS Motorsport upp á þjónustu fyrir viðskiptavini, allt frá „tæknilegri símaaðstoð“ upp í fulla aðstoð í ralli eða við rásbrautina, varahluti og bíla „tilbúna til keppni“. Fram til þessa dags hafa hvorki meira né minna en 300 viðskiptavinir í Evrópu notið þess að keppa í Civic Type R síðan þetta starf var hafið og eftirspurn eftir þjónustu, bílum og varahlutum er talin verða meiri en nokkru sinni á 2008 keppnistímabilinu.
Til baka
