8.07.2008 15:26

Honda stýrir samhæfðum prófunum á ganghjálpartækinu sínu

Honda hóf nýlega samhæfðar prófanir á tilraunastigs-ganghjálpartækinu sínu með Kasumigaseki-Minami sjúkrahúsinu í Saitama héraðinu, Japan. Tækið var búið til til að aðstoða eldra fólk og fólk með máttlitla fótvöðva við gang, lagt verður mat á frammistöðu tækisins við endurhæfingu, þegar fólk lærir að ganga af öryggi og skilvirkni upp á nýtt. Lærlingar, sjúkraþjálfarar, læknar og rannsóknarmenn meta tækið. Honda hóf rannsóknir á ganghjálpartæki árið 1999, með það að markmiði að færa fleira fólki ánægjuna af því að geta hreyft sig. Samhæfð stjórnunartæknin sem nýtt er í þetta tæki er einstök Honda nýsköpun, sem á rætur að rekja til rannsóknar á ganghreyfingum manna sem var framkvæmd fyrir háþróað vélmenni Honda, ASIMO.



Til baka