8.07.2008 15:28

Nýja ASIMO vélmennið þreytti frumraun sína í Bretlandi og vakti áhuga unglinga á vísindum og verkfræði

Nýja ASIMO vélmennið þreytti frumraun sína í Bretlandi í norðaustur Englandi, með það að markmiði að vekja áhuga næstu kynslóðar verkfræðinga á svæðinu, á árlegri Verkfræðisýningu unglinga (YES) sem í þetta sinn var haldin á Rainton Meadows leikvanginum nálægt Newcastle. Sýningin, sem stendur yfir í þrjá daga, er hrað-skreiður fræðsluviðburður, sem samanstendur af kynningum, viðtölum, sýningum og myndböndum um heim verkfræðinnar – og auk þess framkomu nýja ASIMO vélmennisins. Hún gefur um 7.000 námsmönnum færi á að sjá með eigin augum hversu mikilvægur hluti daglegs nútíma lífs verkfræðin er, og að skilja hversu margvíslegir möguleikar á starfsframa eru á þessu fjölbreytilega sviði.



Til baka