Honda kunngerir fyrsta rafeindastýrða samtvinnaða ABS hemlunarkerfið fyrir miðlungsstór keppnishjól
Honda hefur kunngert heimsins fyrsta rafeindastýrða samtvinnaða ABS hemlunarkerfiðsem er sérsniðið að þörfum miðlungsstórra keppnishjóla. Samtvinnun ABS og CBS hemlakerfa í eitt kerfi býður upp á kosti beggja, þar með talið hemlalæsivörn, aukið jafnvægi og auðvelda stjórnun. Það tekur líka tillit til sérstakra eiginda miðlungsstórra keppnishjóla, eins og stutts hjólahafs. Kerfið virkar án þess að hafa áhrif á akstur, og með áherslu á fulla stjórn ökumanns. Það saman-stendur af rafeindastýrðu samtvinnuðu vírbremsukerfi með frumlegum slaghermi. Bein vélstjórn tryggir nákvæma virkni ABS hemlakerfisins.
Til baka
