8.07.2008 15:32

Framleiðsla hafin á nýja eldsneytissellubílnum Honda FCX Clarity

Framleiðsla á nýja eldsneytissellubílnum frá Honda, FCX Clarity hófst í þessum mánuði í verksmiðju í Japan sem sérhæfir sig í eldsneytissellubílum. Eftir 19 ára þróunarvinnu markar koma þessa raunhæfa eldsneytissellubíls upphaf nýrra tíma hreinni bílasamgangna. FCX Clarity – sem skilar einungis frá sér vatni með útblæstrinum – var kynntur við fyrstur-af-framleiðslulínunni athöfn í Miðstöð nýrra bílgerða hjá Honda í Tochigi. Honda sýndi líka nokkra af nýju framleiðsluferlunum, meðal annars ísetningu vetnistanksins og eldsneytissellustafla, en Honda framleiðir einmitt bæði í Tochigi. Á meðal þeirra sem eru fyrstir til að tileinka sér þessa nýjung eru leikkonan Jamie Lee Curtis og maðurinn hennar, kvikmyndagerðarmaðurinn Christopher Guest, og auk þeirra kvikmynda-framleiðandinn Ron Yerxa. Með þessum framkvæmdum er Honda að færa sig nær takmarki sínu, að gera útbreyddari notkun eldsneytissellubíla mögulega.



Til baka