26.08.2008 10:51

Algjörlega endurhannaður Honda Accord frumsýndur

Það er mikið að gerast hjá Bernhard laugardaginn 30. ágúst þegar nýr og glæsilegur Honda Accord verður frumsýndur í Vatnagörðum og hjá umboðsaðilum um land allt. Honda Accord er algjörlega endurhannaður og dregur ný mörk og nýjar línur fyrir þig, fjölskylduna þína, fólkið í kringum þig og ekki síður fyrir umhverfið.

Hannaður fyrir þig og þína – og líka náttúruna
Nýr Accord flytur sig upp um flokk og nálgast óðfluga lúxusbíla á borð við BMW, Audi, Mercedes og Lexus án þess að fara nærri verðmiðum þeirra. Honda Accord er gjörbreyttur, bæði að innan og utan. Hann er fallegri, fágaðri, meiri bíll og vel tilfallinn til að skapa nýjan flokk á markaði. Nýr Honda Accord er með nýrri kynslóð i-VTEC vél sem skilar meiru afli en með minni útblæstri og er afrakstur þrotlausrar þróunarvinnu sérfræðingateymis Honda.

Nýjar línur í hönnun
Við hönnun á Accord ögruðu sérfræðingar Honda hefðbundnum leiðum varðandi bílahönnun. Honda Accord er straumlínulagaðri en áður og lægri sem tryggir enn meiri stöðugleika og mun betri aksturseiginleika. Innanrýmið er glæsilegt og með frábærar lausnir fyrir bæði ökumann og farþega. Sætin laga sig að líkama þínum og setja þig í réttar stellingar svo aksturinn verði enn ánægjulegri.

Öryggislínan dregin ofar
Í öllum bifreiðum Honda er öryggið sett ofar öllu. Sérfræðingar Honda hafa lagt sig sérstaklega fram við að verja farþegana. Í nýjum Honda Accord eru þeir umluktir loftpúðum, bæði að framan, í hliðum sæta og í gardínu. Öryggisbúnaður, eins og hraðastillir, hemlalæsivörn (ABS), rafstýrð hemlaátaksdreifing (EBD), stöðugleikabúnaður, skrik- og spólvörn (VSA) til að hafa betri stjórn við allar aðstæður í umferðinni, eru staðalbúnaður í nýjum Honda Accord.

Framtíðin er núna
Með nýjum og glæsilegum Honda Accord hefur sérfræðiteymi Honda sett nýja staðla í tækni bifreiða. Hefðbundinni hugsun hefur verið boðinn birginn í hönnunarferlinu með það fyrir augum að ná fullkominni samræmingu milli útlits, afls, tækni og öryggis. Framtíðin er í dag og niðurstaðan er einkar glæsileg í nýjum Honda Accord þar sem tekist hefur að draga nýjar línur og ný mörk í hönnun fyrir þig, fjölskyldu þina, fólkið í kringum þig og síðast en ekki síst – móður náttúru.



Til baka