Honda þróar i-SRS loftpúðakerfið ökumannsmeginn, fyrsta sinnar tegundar með samfelldri stjórn uppblásturs
Honda hefur þróað nýtt loftpúðakerfi sem stjórnar samfellt loftmagninu sem blæs upp loftpúðann ökumannsmeginn. Kerfið tekur tillit til fleiri mögulegra staðsetninga bílstjóra og árekstraaðstæðna, og eykur þar með öryggi bílstjórans. Nýjungar í kerfinu eru gormlaga saumsamsetningar og stjórnloka fyrir gaslosun. Betrumbætur á kerfinu eru meðal annars hraðari nýting, þannig að ökumaðurinn er verndaður hraðar, stöðugum þrýstingi er viðhaldið sem verndar bílstjórann lengur. Auk þess er loftpúðinn þannig lagaður að hann skagar minna inn á pláss ökumannsins og þess vegna er höggið á ökumanninn minna. Þetta nýja kerfi verður fáanlegt ökumannsmegin á Life skutlunum sem fara í sölu í nóvember í Japan.
Til baka
