13.10.2008 11:50

Honda hefur lokið við þróun á POLAR III árekstrarbrúðunni

Honda mun byrja að nota nýju þriðju kynslóðar vegfarendabrúðurnar, POLAR III, í farartæki-á-gangandi-vegfaranda árekstrarprófunum, fyrir lok þessa árs. Áætlunin er að minnka meiðsli vegfarenda á mjóbaki og lærum, en slík meiðsli eru algeng þegar gangandi vegfarendur verða fyrir jeppum eða skutlum. Þessi þróun á vegfarendabrúðunum er hluti af áframhaldandi rannsóknum Honda á leiðum til að draga úr meiðslum gangandi vegfarenda. Með því að rannsaka og endurskapa hvernig mannslíkaminn hreyfist við árekstur getur Honda hannað farartækin sín með það að markmiði að minnka meiðsli. Honda hefur notað þessa tækni, með eldri tegundum vegfarendabrúða, við allar bílgerðir sem seldar eru í Japan ásamt fleiri gerðum.



Til baka