9.04.2007 00:00

Keppnislið Honda í Formúlu 1 brautryðjandi í umhverfismálum

Keppnislið Honda í Formúlu 1 tilkynnti í dag um nýtt, meiriháttar framtak fyrir keppnistímabilið 2007 í Formúlu 1. F1 bíllinn, RA107, mun aðeins bera stóra mynd af jörðinni í stað auglýsinga og fyrirtækjamerki stuðningsaðila, til að vekja fólk til umhugsunar um þau umhverfismál sem jörðin stendur frammi fyrir. Auglýsingar og fyrirtækjamerki hafa hingað til verið mjög áberandi á öllum F1 bílum í áratugi.

Nýtt útlit bílsins er kröftug hvatning til aðdáenda, stuðningsaðila, viðskiptamanna og almennings um aðgerðir og að ganga til liðs við skuldbindingu Honda til að takast á við þau umhverfismál sem heimurinn er að fást við.

Gegnum vefsíðuna www.myearthdream.com, geta allir fengið tækifæri til að hafa nafn sitt á bílnum, strengt þess heit að breyta lífsstíl sínum til að bæta umhverfið og veitt framlag til umhverfisverndarsamtaka. Undir hugtakinu „okkar bíll er þinn bíll“ mun hvert nafn mynda lítinn einstakan punkt sem verður hluti af myndinni af plánetunni jörð á bílnum. Hvert nafn verður sýnilegt á vefsíðunni þegar þú strengir heitið, eða gegnum smásjá á bílnum.

Universal Music, stærsta tónlistarfyrirtæki í heiminum og Gatorade eru fyrstu hnattrænu vörumerkin til að taka höndum saman við liðið um þessa spennandi hugmynd. Núverandi samstarfsaðilar hafa með eldmóði tekið hugmyndinni opnum örmum og allir verða viðriðnir liðið á keppnistímabilinu 2007. Til viðbótar er það liðinu mikill heiður að tilkynna að Fila, IBM, Instron, Oliver Sweeney, Perkin Elmer, Showa Denko, TUV og GF Agie Charmilles hafa gengið til liðs við samstarfsaðila og birgja.

Keppnislið Honda í Formúla 1 vinnur náið með hnattrænum umhverfisverndarsamtökum við að þróa núverandi umhverfsiðfræði Honda í Formúlu 1, vinsælustu bílaíþróttar í heiminum.

Nick Fry, aðalframkvæmdastjóri keppnisliðs Honda í Formúlu 1

„Loftslagsbreytingar eru sennilega stærsta einstaka málið sem alþjóðasamfélagið stendur frammi fyrir og Formúla 1 er ekki undanþegin því. Þvert á móti trúum við því að F1, sem er svo áberandi á heimsvísu og býr yfir nýjustu tækni, geti gegnt mikilvægu hlutverki, ekki aðeins í að beina athyglinni að málinu, heldur einnig við þróun lausna. Til viðbótar viðurkennir FIA tækifærið fyrir F1 til að sýna nýstárlega tækni til langtímahagsbóta fyrir samfélagið. Til dæmis verður búnaður til að endurheimta orku til staðar í bílunum árið 2009.” 

„Við hjá F1 liði Honda erum því stolt af því að tileinka bílinn okkar umhverfisáskorun. Við trúum því að hagnýtar lausnir geti átt rætur að rekja beint til verkfræðinganna sem vinna að F1 verkefninu okkar. Þeir leggja enn harðar að sér en áður til að framkvæma draum okkar og vinna heimsmeistaratitilinn um leið og þeir styðja og undirstrika umhverfissiðfræði Honda.”

„Fyrst og fremst erum við keppnishópur og F1 er mjög mikil hópíþrótt. Við náum keppnismarkmiðum okkar aðeins með því að vinna saman og hægt er að draga upp hliðstæðu af því hvernig við verðum öll að taka höndum saman við að takast á við umhverfisátakið. Við vonumst til að vekja fólk til vitundar og leggja áherslu á málefnið og hvetja þar með almenning til að standa saman og hjálpa til við að takast á við áskorunina um loftslagsbreytingarnar.“

 

Yasuhiro Wada, stjórnarformaður keppnisliðs Honda í Formúlu 1 og framkvæmdastjóri Honda Motor Company

„Honda hefur mikla löngun til áskorana í heimsmeistarakeppninni í F1 á þessu ári, 2007. Við vonum að þetta ár verði árangursríkt og spennandi keppnistímabil. Á sama hátt ætlum við að láta gott að okkur leiða í formi nýju F1 umhverfishugmyndarinnar, sem við trúum að muni færa eitthvað nýtt og ferskt inn í bílaíþróttirnar.“

„Honda leitast stöðugt við að koma með nýjungar, bæði í tækni og hugsun og að svara í einlægni kröfum viðskiptavina og samfélags.  Honda hefur alltaf unnið ötullega að því að stuðla að verndun umhverfisins í starfsemi fyrirtækisins. Við vonum að þetta nýja frumkvæði frá Honda í Formúlu 1 muni örva vitund og áhuga á þessum mikilvægu umhverfismálum um allan heim.“



Til baka