7.11.2008 15:41

Honda Accord bíll ársins í flokki stærri fólksbíla og lúxusbíla

Í gær fór fram val Bandalags íslenskra bílablaðamanna á bíl ársins 2009 en þetta er í fimmta skipti sem BÍBB stendur fyrir valinu. Alls voru 29 bílar sem voru í forvali en þeim var síðan fækkað niður í 12.

Í vali dómnefndar, sem er skipuð sjö af reyndustu bílablaðamönnum landsins er tekið mið af fimm þáttum, þ.e. hönnun, aksturseiginleikum, rými, öryggi og verði. Vægi hvers þáttar í heildareinkun er 20% Nýr Honda Accord var valinn bíll ársins í flokki stærri fjölskyldubíla og lúxusbíla. Í umsögn dómnefndar segir m.a. um Accord: Honda Accord er verulega góður bíll, hvernig sem á er litið. Í sama flokki hafnaði Audi A4 í öðru sæti og Mescedes-Benz E NGT í því þriðja.



Til baka