27.11.2008 10:50

Honda Accord öruggasti bíllinn í Evrópu - í flokki stærri fjölskyldubíla

Nýr Honda Accord fékk á dögunum hæstu einkunn í virtum öryggisprófunum hjá evrópsku öryggisstofnuninni, Euro NCAP, í flokki stærri fjölskyldubíla. Árekstrarprófanir stofnunarinnar eru fyrst og fremst ætlaðar til að stuðla að því að almenningur eigi kost á eins öruggum bílum og mögulegt er. Nýr Honda Accord hlaut fimm stjörnur af fimm mögulegum hjá Euro NCAP auk þess sem hann stóð sig best í heildina hvað varðar öryggisvernd fyrir ökumann, börn og gangandi vegfarendur.

Öryggið í fyrirrúmi

Í nýjum Honda Accord er öryggið sett ofar öllu. Prófanir Euro NCAP á öryggisbúnaðinum komu sérstaklega vel út enda hefur sérfræðingateymi Honda hafa lagt sig í líma við að verja ökumenn, farþega og vegfarendur eins og kostur er. Honda Accord hlaut fimm stjörnur af fimm mögulegum í verndun ökumanns, fjórar stjörnur í vernd barna og þrjár fyrir vernd til handa gangandi vegfarendum. Öryggisþættir á borð við hemlalæsivörn (ABS), rafstýrða hemlaátaksdreifingu (EBD), stöðugleikabúnað, skrik- og spólvörn (VSA) til að hafa betri stjórn við allar aðstæður í umferðinni, eru allt saman staðalbúnaður í nýjum Honda Accord.

Háþróaður öryggisbúnaður

Öryggisprófanir Euro NCAP sýna að Honda Accord leitast við að veita bestu öryggisvernd sem til eru á bílamarkaðnum. Grindin er framleidd með nýjustu tækni (ACR) sem gerir dregur úr alvarlegum slysum við ákeyrslur að framan. Honda Accord er með háþróað kerfi þar sem spól- og skrikvörnin (VSA) og rafstýrða aflstýrið (EPS) vinna vel saman. Kerfið fylgist með hvernig ökumaður stýrir og getur brugðist við þegar beygt er í hálku eða á lausum jarðvegi án þess að taka stjórnina af bílstjóranum. Rafstýrða hemlaátaksdreifingin (EBD) jafnar hemlunarátak eftir þyngdardreifingu í bílnum og gerir hana mun nákvæmari fyrir vikið. Framsætin og höfuðpúðarnir eru sérstaklega hannaðir til að vernda efri hluta líkamans og fékk Honda Accord 2,26 í einkunn af 4 hjá Euro NCAP fyrir þessa þætti í prófunum.

Leiðandi á sviði öryggis

Framleiðendur Honda eru himinlifandi með niðurstöður prófanna Euro NCAP. Þær staðfesta að Honda Accord er leiðandi á sviði öryggis í stærri fjölskyldubílum og undirstrikar enn frekar að bíllinn er sá áreiðanlegasti í Evrópu í sínum flokki enda aksturs- og árekstraröryggi viðurkennt sem mikilvægur þáttur í hönnun hjá Honda.



Til baka