16.12.2008 00:00

Honda Soltec hefur sölu á sólarrafhlöðuþynnum fyrir almenning og iðnað

Sólarrafhlöðuframleiðandinn Honda Soltec Co., sem er dótturfélag Honda, hóf sölu í síðasta á sólarrafhlöðuþynnum fyrir almenning og iðnað í Japan. Honda sem hefur selt sólarrafhlöður til heimilisnota síðan í október 2007, ætlar að auka markaðshóp sinn með því að framleiða og selja sólarrafhlöður með þeirri miklu afkastagetu sem almenningur og iðnaður þarfnast.

Með aukinni umhverfisvitund sér Honda aukningu í eftirspurn eftir sólarrafhlöðum, ekki bara til einkanota heldur líka til almennings og iðnaðarnota, og heldur því áfram að styrkja undirstöðu sína á þessu sviði með því að auka við vörulínuna.



Til baka