11.12.2008 11:44

Honda opnar nýja vefsíðu um umhverfismál

Honda hefur ýtt úr vör nýrri vefsíðu um umhverfismál - hondaeco.eu - en henni er ætlað að auka áhuga á og upplýsa almenning og aðra aðila um umhverfisverndarstarfsemi Honda. Síðan sem var gangsett 1. desember, á ensku, frönsku, þýsku, ítölsku og spænsku, sýnir hvernig hugsjón Honda um umhverfisvæna sjálfbærni kemur fram í hinum ýmsu hliðum á starfsemi Honda: eldsneyti, endurvinnslu, útblæstri og ráðstöfun ónýtra bíla. Óaðskiljanlegur hluti síðunnar er nákvæm útlistun á „Eltum drauma“ hugsjón Honda, sem lýsa því hvernig fyrirtækið hefur skuldbundið sig, allt frá stofnun þess 1948, til að fylgja umhverfisstöðlum. Hægt er að niðurhala skjölum eins og ársskýrslum um umhverfis- og samfélagslega ábyrgð.

Hnöttur minni Umhverfissíða Honda (opnast í nýjum glugga)



Til baka