26.03.2007 13:51

HondaJet hlýtur verðlaun hjá Popular Sience tímaritinu

HondaJet, ný þota sem Honda setti í almenna sölu í síðasta mánuðu hefur verið valin sigurvegari "Best of What´s New" hjá tímaritinum Popular Science fyrir árið 2006 í flokki loft- og geimtækja. HondaJet var valin úr hópi annarra farartækja fyrir framúrskarandi hönnun og frumlega eiginleika og tækninýjunga. En þessir þættir eru stórt stökk fram á við hönnun í þessum flokki.
HondaJet tekur 6 farþega ásamt 2 flugmönnum, er með 12,15m vænghaf. Hámarkshraði er 772km/klst og flugþol er um 2.050km.

Nánar upplýsingar um vélina er á heimasíðunni HondaJet.com



Til baka