2.03.2009 13:14

Yfir 300.000 Honda Hybrid bifreiðar seldar frá upphafi

Í dag tilkynnti Honda að uppsöfnuð sala á Honda hybrid bifreiðum hefði náð 300.000 einingum í janúar 2009. Honda frumsýndi sinn fyrsta fjöldaframleidda hybrid bíl í Evrópu árið 1999,  fyrstu kynslóð af Honda Insight og í framhaldi af þessum byltingarkennda 2ja sæta bíl kom 4ra dyra Civic IMA og Civic Hybrid.

Honda selur nú Hybrid bifreiðar sínar í um 40 löndum um allan heim og þar á meðal í lykilmörkuðunum þremur, Evrópu, Norður Ameríku og Japan.

Nú styttist í það að nýr Honda Insight komi á markað, 5 dyra hlaðbakur, útbúinn léttu og fyrirferðalitlu Hybrid kerfi sem nær framúrskarandi bensíneyðslu á viðráðanlegu verði.

Sala á Insight hófst í Japan nú í byrjun febrúar og hefur sala á honum gengið framar vonum. Á ellefu dögum var búið að panta yfir 10.000 bíla, en það er tvöföld áætluð mánaðarsala bílsins þar í landi. Honda Insight áætlaður í sölu í Evrópu og Norður-Ameríku í mars og apríl.

Honda hefur sett sér þau markmið að selja yfir 200.000 hybrid bifreiðar á heimsvísu árlega, eða um 60.000 bifreiðar í Japan, meira en 30.000 bifreiðar í Evrópu og um það bil 100.000 bifreiðar í Norður-Ameríku.

Honda ætlar síðan að breikka Hybrid línu sína með nýrri sportlegri bifreið byggða á hugmyndabílnum CR-Z, árið 2010 í sókn sinni að bjóða upp á fjölbreytt úrval af Hybrid bifreiðum.



Til baka