Honda Civic einn af öruggustu bílum í Evrópu samkvæmt nýjum stöðlum EuroNCAP
EuroNCAP hefur þróað nýja einkunnagjöf sem beinir athygli að alhliða öryggi bíla, en nýja kerfið gefur neytanda betri skilning á hverjum þætti öryggisprófsins. Nýja einkunagjöfin tekur með í útreikningum sínum, öryggi farþega við framanákeyrslu, hliðarárekstur, hliðarárekstrur við stólpa og aftanákeyrslu, öryggi ungbarna, öryggi gangandi farþega sem og möguleika á aðstoð ökumanns. Honda Civic hlaut hámarks fimm stjörnu öryggi með framúrskarandi meðaltaleinkunn upp á 77%.
Hið nýja EuroNCAP árekstrarpróf endurspeglar skuldbindingu Honda um öryggi bifreiða og fylgir vel eftir 5 stjörnu einkunninni sem nýja Honda Accord var gefið. Honda hefur alltaf lagt sig fram að framleiða bifreiðar sem eru öruggar, bæði fyrir farþega og vegfarendur.
Nýja einkunagöfin hrósar þeim öryggis- og árekstrarprófunum sem Honda sem unnið að árum saman, sem leita leiða til að auka öryggi á vegum úti. Árekstrarprófanir Honda eru í sérbyggðu húsnæði í Tochigi í Japan, en þar eru greindir árekstrar milli tveggja bifreiða í mismunandi stærðum og þyngdum og þróaðar lausnir til að draga úr meiðslum fyrir báða aðila.
Öryggi í Honda Civic
Allar útgáfur af Honda Civic eru útbúnar með ABS bremsukerfi og til að ná fram hámarks eiginleikum er einnig rafræn bremsuátaksdreifing (EBD). Einnig er Honda Civic útbúinn með VSA stöðugleikakerfi til að tryggja það að ökumaður hafi fulla stjórn á bílnum undir erfiðum kringumstæðum.
Óvirkt öruggi hefur alltaf verið í hávefum haft hjá Honda og Civic er með nýjungagjarna áminningu fyrir öryggisbelti farþega í aftursæti. Kerfið nemur opnun og lokun á afturhurðum og birtir skilaboð um stöðu hvers og eins sætisbeltis. Ökumaður og farþegi í framsæti fá einnig sérstaka athygli hvað varðar óvirkt öryggi, en bæði sætin eru útbúin með tvöföldum sætisbeltastrekkjurum.
Virkir höfuðpúðar í framsætum gegna höfuðatriði í vörnum gegn háls- og bakáverkum við árekstur og Civic hefur náð hæðstu mögulegu einkunn við mælingu á háls hnikkjum við árekstrum sem var framkvæmt að óháðri rannsóknarstofnun, Thatcham.

Til baka
