HONDA FCX Clarity vinnur titilinn "grænasti bíll í heimi"
Honda FCX Clarity vetnisbíllinn var valinn "grænasti bíll í heimi" á Alþjóðlegu bílasýningunni í New York. Verðlaunin koma á sama tíma og Honda kunngerir um nýja vetnisrannsóknardeild í evrópsku þróunarmiðstöð sinni í Offenbach, Þýskalandi. Miðstöðin mun hafa það verkefni að meta vetnistækni í evrópskum aðstæðum og vinna með hagsmunaaðilum til þess að aðstoða við þróun viðeigandi grunnkerfis eldsneytisstöðva.
Til baka
