|
Áhrifamikil, vökvakæld 675cc vél með 40mm PGM-FI beinni innspýtingu – þeirri allra fyrstu í Honda fjórhjóli – stöðug frammistaða í mikilli lofthæð, frábær ræsing í miklum kulda, bætt eldsneytisnýting og aukinn kraftur. Þriggja gíra vökvaskipting með einum bakkgír, þessi frábæra vél er hönnuð fyrir erfiðisvinnu. Það að hjólið hefur engar reimar felur einnig í sér að það er ekkert tap á krafti eða rennsli í bleytu. Þegar þörf er á gerir Electric Shift Programme (ESP) búnaðurinn þægilega beinskiptingu mögulega og á sama tíma gerir TraxLok™ stýringin kleift að velja á milli 2WD eða 4WD drifa. Vatnskælda, eins strokka Rincon TRX680FA vélin býr yfir gríðarlegum krafti til þess að draga, flytja eða til að kanna náttúruna.
Til þess að nýta sem best orku vélarinnar býr Rincon yfir fjölda eiginleika sem gera akstursupplifunina enn betri. Það á einnig við um rafstýrða sjálfskiptinguna þar sem val er um 2WD og 4WD, þýðum kraftinum er beint til gripmikilla dekkjanna í gegnum viðhaldslítil drifsköftin. Þægindin undir akstri eru einfaldlega einstök, stór og ríkulega bólstruð sæti, sjálfstæð fjöðrun á öllum hjólum, sérsniðnir afturdemparar, radial dekk og fyrirhafnarlítil stýring. Tvöfaldar diskabremsurnar að framan með innbyggðum sköfum til að bæta hemlunarhæfnina. Allt frá flottu mælaborðinu, svipmiklu grilli að framan og aðalljósum til þæginda svo sem ræsibúnaðar með lykli, þvottþolinna loftsía og rúmmikils eldsneytistanks, býr Rincon TRX680FA yfir miklum gæðum og betri frammistöðu til að ná sínu verðskuldaða sæti – fremst í flokknum.
|