|
Gold Wing er tæknivæddasta og best útbúna ferðahjólið okkar. Það er því engin tilviljun að síðan hjólið var kynnt árið 1975, hefur það hlotið titilinn Konungur götunnar, um allan heim. Fullnægjandi kraftur úr flatri 6 strokka fjórgengis vél, með beinni innspítingu. Með öflugan og áreiðanlegan kraft og áreynslulaust tog upp langar brekkur. Honda GoldWing er mjúkt og hljóðlátt, þökk sé viðhaldsfríu drifkerfi sem veitir þér og farþega þínum áhyggjulausan akstur, bakvið straumlínulagaðan framendan og fjölstillanlegt glerið. Hallaðu þér aftur og hlustaðu á þína uppáhalds tónlist úr innbyggðu hljómkerfi hjólsins um leið og þú nýtur fallegrar náttúrunnar.
Með lágan þyngdarpunkt, ál stell og straumlínulagað útlit er Gold Wing einstaklega lipurt, allur akstur hvort sem er um beina breiða þjóðvegi eða mjóa og hlykkja vegi borga og bæja verður jafnt glæsilegur og öruggur. Með C-ABS bremsukerfi sem valbúnað tryggir þú jafna og örugga hemlun við allar aðstæður. Mismunandi yfirborð vega er jafnað út með háþróuðu fjöðrunarkerfi með Pro Arm sveifararmi úr hertu áli og tölvustýrðum Pro-Link dempara að aftan. Meðal annars hátæknibúnaðar má nefna umhverfisvænan útblástur, rafstýrðan bakkgír og skriðstilli.
|