|
Honda VFR1200F var hannað til að halda við arfleifð VFR hjólanna, hjólum sem nota nýjustu tækni fáanlega hverju sinni og búa yfir eiginleikum sport- og ferðahjóla. VFR1200F er aftur á móti eitthvað sem er alveg nýtt: Hrein og bein túlkun á hinu eiginlega sport- og ferðahjóli. Hugmynd sem byggir á djúpum skilningi á þörfum viðskiptavinarins og innleiðingu á bestu fáanlegri tækni sem er á boðstólnum í dag.
Í leitinni að aukinni stjórnun og svörun, tileinkar VFR1200F aðlagaða og þróaða tækni af kappakstursbrautinni til að búa til mótorhjól sem býr yfir mörgum eiginleikum fyrir marga mismunandi ökumenn. Urrandi hljóðið úr sveigjanlegum og viðbragðsgóðum V4 mótornum glæða nýjar glóðir tilfinninga tengdum fyrri VFR hjólum, en einstakur "hjartsláttur" vélarinnar og óviðjafnanlegur meðfæranleiki skilur VFR1200F frá öðrum hjólum, bæði forvera sem og þau hjól sem framleidd eru í dag.
VFR1200F er einnig útbúið tveggja kúpplinga Honda skiptingu, fyrstu algjörlega sjálfvirku sjálfskiptingar í heiminum fyrir mótorhjól með mikið slagrými. Til að svara kröfum ökumanns við mismunandi skilyrði og aðstæður, býður skiptingin upp á þrjú mismunandi kerfi : tvö alveg sjálfskipt (D-kerfi fyrir afslappaðan, hagkvæman akstur og S-kerfi fyrir sportlegri akstur), og sex gíra rafskiptingu fyrir fullkomna stjórnun ökumanns sem skilar sama viðbragði milli gíra og hefðbundin beinskipting.
|