|

|
MÓTOR
- Loftkæld 99cc fjórgengisvél með einum yfirliggjandi knastás og tveimur ventlum.
- 22 mm blöndungur með frábærri eldsneytissvörun.
- Sérhönnun á ventlastýringum, stimpilhringum og pakkningum veitir minnstu mögulegu olíunotkun og áberandi góðan kraft.
- Lokuð sveifarhúsöndun dregur úr áhættu á olíusmiti.
- Viðhaldsfrítt stafrænt kveikjukerfi.
- Öflugur hljóðkútur heldur hávaða í lágmarki.
- 5-gíra gírkassi.
- Sérstyrkt og endingargóð kúpling.
STELL
- Öflugt stell úr léttstáli.
- 27 mm Showa framgafall.
- Sérstyrkt Showa Pro-Link afturfjöðrun.
- Léttmálms-skálabremsur framan og aftan.
- Stór dekk, 19 tommu framan og 16 tommu aftan.
AÐ AUKI
- Ræsilás með lykli veitir þjófavörn.
- Mjókkað og vel bólstrað sæti veitir hámarks þægindi fyrir ökumann.
- Mikil hæð undir lægsta punkt og hlíf undir mótor.
- Hönnun, innblásin frá keppnishjólum Honda.
- Breitt og þægilegt stýri eykur þægindi.
- Þvottþolnar loftsíur.
- Sjálfhreinsandi fótstig.
- Endingargóð torfærudekk með góðu gripi.
- Silfurlitað stell og fótstig.
|
|