|
Kraftmeiri og nettari 4-ventla Unicam vélin er nú útbúin beinni innspýtingu (PGM-FI) sem stillir sig sjálf fyrir hvaða aðstæður sem er: bleytu eða rigningu, hita eða kulda. Slaglengri vélin notar MotoGP tækni til að ná meira togi á mið og há- snúning, og hún ásamt alveg endurhönnuðu pústkerfi með einum kút, lækkar þyngdarpunktinn og bætir þyngdardreyfingu til að ná sem bestum eiginleikum.
Óviðjafnanlegu beygjugetuna og stöðugleikans á beinum köflum er hægt að rekja til Honda Progressive stýrisdemparans. Nýstárlegi HPSD stýrisdemparinn er fínstilltur til að vinna fullkomlega með brattari halla á framgafflinum á 5-kynslóðar stellinu, nýju 48mm Showa framdempurunum og endurbætta afturdemparanum og ProLink fjöðruninni. Endurbætt gírhlutföll bæta tog og grip, á meðan átta diska kúpplingin virkar léttari í notkun til að draga úr þreytu ökumanns. Ferskt nýtt útlit hjálpar svo allri tækninni að bæta hringtíma án fyrirhafnar frá holuskoti til sigurs.
Helstu eiginleikar:
- Slaglengdin er lækkuð í 76.8mm fyrir meiri styrk og þjappan verður hærri við 13.2:1 sem skilar meira afli
- Nýr hertur stimpill leyfir þynnri stimpilkoll á meðan efnið í stimplinum hefur einstaklega lítið viðnám sem gerir háan snúning mögulegan.
- Ádreparinn er með innbyggt LED gaumljós sem gefur til kynna að PGM-FI beina innspýtingin er að vinna eðlilega.
- Endurhannaðir stærri vatnskassar bæta kæligetu.
- Kashima húðun á kúpplingskörfuna og kúpplingsmiðju bætir endingu og gefur betri tilfinningu.
- Endurhönnuð losanleg stélgrind (subframe) bætir aðgang að loftsíu og mjókkar hjólið.
- Ný festing á bensíntank eyðir þörfinni á að aftengja bensínslöngu til að vinna í efri hluta mótors.
- Nýr 29mm lengri afturgaffall og lengra hjólhaf ásamt brattari halla á framgaffli eykur grip og beygjugetu og stöðugleika við hröðun
- Byltingarkennd notendavænni hönnun (RED), grennri og mýkri línur aðvelda hreyfingar ökumanns frá sæti að tanki fyrir betri stjórnun.
|