|
Léttleiki skiptir miklu máli fyrir topp afköst, og Unicam vélin (einn knastás) með þynnra sveifaráshúsi í CRF-450R skiptir höfuðmáli í því sambandi. Nett og lágstæð vélin í 5-kynslóðar álstellinu skilar betri þyngdardreyfingu ekki aðeins til að gera alla stjórnun auðveldari, heldur líka auka viðbragðsflýti, bæta beygjugetu og jafnari vinnslu. Lágur þyngdarpunkturinn ásamt straumlínulöguðum prófíl hjólsins bæta til muna alla eiginleika og stjórnun í lofti og á pöllum. Einstök geta til að tryggja þér bestu aksturlínuna er svo tryggð með KYB 48mm fram fjöðrun með breyttri ventlauppsetningu afturdempara með endurhönnuðum stimpli og dempunarstilli á meðan stýrisdemparinn á CRF bætir grip á framhjólinu. Hjólið er endurhannað fyrir afslappaðri akstursstöðu til að draga úr þreytu, þetta er allt sett í einn pakka í CRF450R 2010.
- Ný ECU forritun og ný uppsetning á FI beinu innspýtingunni bæta viðbragðsflýti út úr beygjum og bæta stjórnun.
- Beina innspýtingin stillir sig sjálfkrafa fyrir stöðugri afköst í mismunandi veðri og lofthæð.
- Einstök hagkvæmni í eldsneytisnýtingu gerir kleyft að hafa eldsneytistankinn minni.
- Léttur, hertur stimpill fyrir betra viðbragð og meira afl á hærri snúning ásamt betri þéttingu í sýlinder
- Léttur Ni-SiC sýlinder tryggir betri kælingu sem skilar betri endingu og er hljóðlátari
- Nýr sjálfvirkur þjöppuléttir auðveldar gangsetningu, við allar aðstæður
- Átta diska kúppling sér um að nægt grip er fyrir hendi til að taka við gríðarlegu torkinu, á meðan sérvaldir gormarnir gefa léttari tilfinningu í
- HRC Works-type afturbremsan er með sambyggða dælu og forðabúr sem gerir hefðbundna slöngu og forðabúr óþarft.
HRC PGM-FI stillingatæki
CRF450R eigendur geta breytt EFI stillingum og kveikjutíma á marga vegu til að breyta vinnslusviði vélarinnar
|