
Hvers vegna þjónustuskoðanir
Þegar ný bifreið er afhent til viðskiptavinar fær hann í leiðinni afhenta þjónustubók sem jafnframt er ábyrgðarskírteini bifreiðarinnar.
Nauðsynlegt er að þjónustubókin sé stimpluð af viðurkenndum þjónustuaðila Bernhard ehf. með kílómetrastöðu og dagsetningu í hvert sinn sem þjónustuskoðun eru innt af hendi. Þjónustuskoðanir eru byggðar á aðgerðarferli frá framleiðanda sem nauðsynlegt er að inna af hendi á 15.000 km fresti eða í síðasta lagi einu sinni á ári. Á milli þjónustuskoðana eða á 7,500 km fresti þarf að skipta um vélarolíu og olíusíu.
Þjónustuskoðanir eru inntar af hendi til að hámarka endingu allra slit, véla og gírkassa/sjálfskiptinga hluta, og þar með auka enn frekar á þá ánægju sem fylgir því að aka nýrri bifreið
Hafa ber í huga að komi upp galli í bifreið innan ábyrgðamarka sem rekja má til þess að þjónustuskoðanir hafi ekki verið inntar af hendi innan tilsettra marka getur framleiðandi hafnað bótum.Ef upp koma spurningar hafið þá samband við næsta þjónustuaðila.



